Herbalifrarbólga - illt í efni
14.1.2007 | 02:43
Mér hefur persónulega alltaf þótt Herbalife frekar óspennandi vöruflokkur, eða lífstíll eins og sölumennirnir vilja kalla það, af þeirri ástæðu einni að ég nýt þess alveg niður í tær að borða góðan mat. Ég skipti einfaldlega ekki á safaríkri medium-rare nautalund, créme brûlée, kjúlla-fajitas, poulet sautée marengo, eplaböku, svo fátt eitt sé talið, og einhverju dufti. Það kemur ekki til mála. Auk þess færi maginn bæði og bragðlaukarnir í bullandi baklás ef ég ætlaði að hefja einhvern "duftlífstíl".
Það er hins vegar bara mín stefna, og hver verður að fá að borða það sem hann kýs. Nú horfir málið aftur á móti öðruvísi við, ef fólk er að lenda á spítala vegna neyslu Herbalife. Það er alvarlegt mál. Hvernig væri bara að temja sér dálitla sjálfstjórn, gott fólk? Borðið það sem ykkur langar í, bara ekki heilt herjans vaskafat af því sem ykkur langar í. Hunskizt til að hreyfa ykkur líka og þá þurfið þið ekki að lepja duftið úr skel. Ég meina, komm on!! Eins og Færeyingarnir segja; "Fá tú tér eitt líf!"
Að lokum vil ég velta upp krefjandi spurningu: ef Herbalife er lausnin við öllum okkar næringarvandamálum og svo gott sem skotheld leið til að ná kroppnum í gott form - ætti þá ekki Herbalife-sölufólk að vera hasarkroppar upp til hópa, tágrönn, fitt og flott öll sem eitt?!
Þegar RISASTÓRT er spurt ...
|
Sex lifrarbólgutilfelli eftir neyslu á Herbalife |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Meginflokkur: Matur og drykkur | Aukaflokkar: Bloggar, Dægurmál, Lífstíll, Vísindi og fræði | Facebook




olihilmar
saevar
eirikurg
arnim
hoskuldur
morgunbladid
jonaa
jakobsmagg
vincentvega
doddilitli
ragnar73
ragnarfreyr
olinn
ommi
tulugaq
haukurn
halli
nielsen
ea
jax
bjb
toshiki
gylfi
gudmundurmagnusson
fararstjorinn
hvala
sigurjon
vefritid
gattin
seth
stebbifr
poppoli
doriborg
ingibs
hhbe
athena
regin
axel-b
valgeir
formosus
lemon
Athugasemdir
Mér hefur alltaf fundist mjög einkennilegt að stofnandi Herbalife lést 42 ára að aldri... Minnir að hann hafi fengið hjartaáfall...kanski overdosað á örvandi teinu..Finnst þetta ekki alveg fitta miðað við að þessi fæðubótaflokkur eigi að vera heilsubætandi....
Agný, 14.1.2007 kl. 08:39
Herbalife og fleiri lífsstílskúrar eru í flestum tilvikum ekki það svar sem fólk leitar að. Margar þær jurtir sem notaðar eru í þessar þurrefnablöndur og eins pillurnar og fleira, eru lítt rannsakaðar og í nokkrum tilvikum eru þetta þekkt efni sem eru ekki beinlínis til þess fallin að innbyrða. T.d. er það viðurkennt af Íslensku læknastéttinni að fólk með hjartsláttartruflanir megi alls ekki neyta Herbalife. Ég er einn af þeim og fleiri sem ég þekki, sem ætluðu að fara að nota þetta efni. Hins vegar hef ég aldrei þurft á aðstoð efna til að vera fit, einungis rétt samsett fæði og næg hreyfing.
Sigurpáll Björnsson, 14.1.2007 kl. 13:08
Hef aldrei verið hrifin af duftlífsstíl. Hinsvegar finnst mér í lagi að fá mér vítamíndrykki ef mig vantar eitthvað auka en ég vil þá vera viss um innihaldið og og get alveg eins keypt þá drykki úti í næstu heilsubúð. Hef prófað sheika úr flestum merkjum en viðvörunar bjöllurnar hafa alltaf hringt á Herbalifa sérstaklega eftir effedrín umræðuna hér um árið.
Birna M, 14.1.2007 kl. 17:35
Af dufti ertu kominn...Ævar Þórólfsson
Eftir mikinn úlfaþyt í kjölfar Herbalife lifrarbólguekkifréttarinnar um síðustu helgi blogguðu margir vítt og breitt. Ég fer ekki í þessa frétt hérna, en bendi áhugasömum um þessa grein, eftir moi, http://www.minnsirkus.is/Communities/herbalife/Forum/Thread/973/1509, þar sem bent er á tvær staðreyndir á hlutlausan og röklegan máta sem gefa sterklega til kynna að hrekkjalómurinn Pétur (já, einmitt, úlfaþytur, þessi með úlfinn) hafi tekið sér bólfestu í Magnúsi Jóhannessyni lækni um stundarsakir. En nóg um það, víkjum okkur að meginmálinu.
Ég las nokkur Moggablogg um þessa frétt þar sem skoðanir voru skiptar. Þar var áberandi að margir fussuðu og sveiuðu yfir þessari vitleysu að troða dufti ofan í sig í gríð og erg, slíkt gæti nú ekki verið hollt fyrir nokkurn. Þetta fólk, nema það hafi allóvenjulegt og sérstætt mataræði, veður í villu og svima (hvaðan kemur þetta orðatiltæki eiginlega?).
Tökum dæmi:
Flest, ef ekki allt, morgunkorn: Steypt duft (varla heldur fólk að seríos hringirnir séu ræktaðir á ökrum?).
Brauð: Bakað duft.
Kex: Steypt duft.
Flest unnin kjötvara: Blönduð með dufti (t.d. sojapróteini, en einnig með einhverjum óþverra).
Pasta: Samanlímt og hert duft.
Öll vítamín í töfluformi: Steypt duft.
Kaffi: Vatnsblandað duft (kaffibaunir eru alla jafna malaðar og breytast þar með í duft).
Og svo framvegis.
Og svo framvegis.
Sumir fá sér steypt duft með mjólk í morgunmat.
Sumir fá sér bakað duft í hádegismat og drekka safa með.
Ég nota mitt duft í sinni hreinustu mynd og blanda mjólk eða safa út í.
What's the diff? Ég bara spyr!
Fyrir þá sem koma með mótbárur á þeim grundvelli að ég rugli saman eplum og appelsínum, hafið eftirfarandi í huga: Duft í næringarsheika, veri þeir frá Herbalife, EAS, Nestlé eða hvaða aðila sem er, er ekki galdrað upp úr tóminu. Duftið kemur oft af malaðri matvöru eða þar sem búið er að vinna einhver efni úr matvöru, oft þurrkaðri. Í tilfelli Herbalife sheika er að miklu leyti um malaðar sojabaunir og þurrkaða ávexti og grænmeti (þurrkað og malað auðvitað) að ræða. Alveg eins og í seríosinu, þar sem notaðir eru malaðir hafrar og fleira duft.
...að dufti skaltu aftur verða. Þess á milli borðum við duft. Er það ekki?
Gerður (IP-tala skráð) 19.1.2007 kl. 08:52
Vel að orði komist, Gerður - en kjöt, fiskur, ávextir og grænmeti verður samt áfram á mínum borðum ... duft er ekki upphaf og endir alls. Öllum sem kjósa sér duftið í hvívetna óska ég gleðilegra duftdaga. Þetta á bara ekki við mig, það er allt og sumt. Og andúð mín er ekki umfangsmeiri en svo að ég læt þetta vera fyrir mína parta, en hef enga skoðun á því hvað aðrir gera og reyni þ.a.l. aldrei að hafa áhrif á þeirra skoðanir eða lífstíl. Það verður hver að fá að borða það sem hann langar í, og smekkur hvers og eins er óumdeilanlega réttur hvers og eins.
Jón Agnar Ólason, 19.1.2007 kl. 12:29
já það er gott að allir eigi rétt á eigin skoðunum og lífsstíl. Hver og einn tekur ábyrgð á sinni heilsu og enginn annar.
Þú ert samt alltaf velkominn í heilsuklúbbinn minn ef þér snýst hugur, þá fáum við okkur reyndar oftast duft, en líka grænmeti, ávexti,kjöt eða fisk :) heitir reyndar Duftklúbburinn :) en gaman að þessu....... bið að heilsa :)
Flott blogg hjá þér... Góða helgi. Kveðja Gerður
Gerður (IP-tala skráð) 19.1.2007 kl. 15:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.