Hver er Cortney Tidwell og hvar fékk hún alla þessa dásamlegu tónlist?
14.9.2006 | 20:57
Þið þekkið tilfinninguna; að hlusta á frábæra nýja tónlist sem líkist ekki neinu sem maður hefur áður heyrt. Minnir svona aðeins á þetta og hljómar stundum eins og hitt, en í það heila er þessi nýja músík að snerta strengi sem lágu fram að því ósnortnir. Tilfinningin er óviðjafnanleg.
Í árdaga bloggs þessa (mars/apríl) færði ég inn ógurlega hlemma - sannkallaða bloggdoðranta - um þær 15 plötur sem höfðu í gegnum tíðina haft hvað mest afgerandi áhrif á mig og músíkáhuga minn. Ég taldi til plötur í tímaröð - eftir því hvenær ég heyrði þær - og sú síðasta sem ég nefndi var "Frank Sinatra Sings For Only The Lonely"; heyrði hana 1998 og síðan þá hef ég ekki orðið fyrir stórkostlegum tilverubyltandi áhrifum af nýju efni. Maður sjarmerast vitaskuld reglulega og finnur fyrir gott stöff, en jörðin nötrar ekki. Þangað til nú.
Stúlka er nefnd Cortney Tidwell. Ekki Courtney - heldur Cortney. Hún er ættuð frá Nashville, Tennessee og af músíkölsku foreldri. Æska hennar var um margt erfið því móðir hennar, fyrrum fegurðardrottning Tennessee-fylkis, missi heilsuna í klær geðhvarfasýki og var undir það síðasta svo ofsóknaróð að ef heyrðist í þyrlu utanhúss læsti hún sig æpandi inni og taldi víst að verur væru komnar að sækja hana. Cortney litla læsti sig inni í herbergi flesta daga og reyndi að láta daginn líða. Móðir hennar lést aðeins 49 ára, og hlutskipti hennar varð til þess að Cortney sótti huggun í gítarinn og píanóið. Núna, allmörgum árum síðar, hefur afrakstur þess fikts skilað sér á plötu með himneskri gítarmúsík, rafskotinni hér og hvar, og söngurinn er svo dáleiðandi fallegur að manni fallast bara hendur.
"Don't Let Stars Keep Us Tangled Up" heitir platan, og hún er það besta sem ég hef heyrt í áravís. Þvílík og önnur eins snilldarplata - ellefu afbrigði að englamúsík. Þetta er 16. platan "sem bætir tilveruna".
Hlýðið á og sannfærist hér: http://www.myspace.com/cortneytidwell
Til hamingju og njótið vel.
Meginflokkur: Tónlist | Aukaflokkar: Lífstíll, Bloggar, Bækur, Dægurmál | Breytt 15.9.2006 kl. 15:39 | Facebook




olihilmar
saevar
eirikurg
arnim
hoskuldur
morgunbladid
jonaa
jakobsmagg
vincentvega
doddilitli
ragnar73
ragnarfreyr
olinn
ommi
tulugaq
haukurn
halli
nielsen
ea
jax
bjb
toshiki
gylfi
gudmundurmagnusson
fararstjorinn
hvala
sigurjon
vefritid
gattin
seth
stebbifr
poppoli
doriborg
ingibs
hhbe
obama
athena
regin
axel-b
valgeir
formosus
lemon
Athugasemdir
Commenta svo á þetta! Engan aumingjaskap...
Jón Agnar Ólason, 15.9.2006 kl. 14:27
Er búinn að vera að melta þessa ágætu plötu...mjög góð plata finnst mér.
Óli jr (IP-tala skráð) 18.9.2006 kl. 10:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.