Nöldurskjóður Íslands
4.12.2008 | 12:52
Og sjá: hér birtist yður hið sér-íslenska "nöldur út af engu" í kristaltærri mynd.
"Alla fimmtudaga fram að jólum verður Morgunblaðinu dreift í aldreifingu á höfuðborgarsvæðinu. „Með þessu móti viljum við gleðja fólk og gefa þeim sem ekki eru þegar orðnir áskrifendur tækifæri til þess að kynnast þessu geysilega öfluga blaði,“ segir Gylfi Þór Þorsteinsson, auglýsingastjóri Árvakurs."
Gott mál og þakklátt framtak, skyldi maður ætla.
En nei, ekki þegar Íslendingar í "jólaskapi" eru annars vegar.
Þegar hér er komið sögu er ég sá níundi sem bloggar upp úr fréttinni. Af hinum átta var einn jákvæður gagnvart þessari aðgerð Morgunblaðsins. Hinir sjö berja lóminn til ólífis og nöldra eins og þeim sé borgað fyrir það. Finna þessum gerningi allt til foráttu.
Ein konan kallar meira að segja eftir því að fólk á landsbyggðinni segi "þessum snepli", eins og hún orðar það svo jákvætt, upp þegar í stað. Eitthvað segir mér að viðkomandi hefði kvartað undan því að fá blaðið ætti það að berast henni téða fimmtudaga. Sumir líta einfaldlega ekki glaðan og nöldurlausan dag, sama hvað. Merkilegt viðmót, og það á aðventunni.
Ég heyrði af því í fréttum að fyrsta upplag af endurútgáfu á Pollýönnu væri uppselt en annað upplag væntanlegt. Ljóst er að enginn framangreindra nöldrara náði að festa kaup á bókinni í tæka tíð. Ég mæli með því að grátkórinn sem hatast við fría fimmtudagsmoggann kaupi sér bókina um jákvæðu stúlkuna og tileinki sér í framhaldinu ögn meiri jákvæðni í skammdeginu.
|
Morgunblaðið í aldreifingu fram að jólum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |




olihilmar
saevar
eirikurg
arnim
hoskuldur
morgunbladid
jonaa
jakobsmagg
vincentvega
doddilitli
ragnar73
ragnarfreyr
olinn
ommi
tulugaq
haukurn
halli
nielsen
ea
jax
bjb
toshiki
gylfi
gudmundurmagnusson
fararstjorinn
hvala
sigurjon
vefritid
gattin
seth
stebbifr
poppoli
doriborg
ingibs
hhbe
obama
athena
regin
axel-b
formosus
lemon
Athugasemdir
Góðan dag drengur minn góður.
Já það sé ég að þú ert eins og þú lýsir svo vel sjálfur "óforbetranlegt borgarbarn". Hvað ætli það nái langt aftur í ættir? Við eigum að gleðjast yfir þessari "gjöf" til höfuðborgarbúana. Já, ég get svo sem alveg gert það þar sem mér finnst "snepillinn" ekki merkilegur. En þrátt fyrir það að meirihluti búi þarna á suðvesturhorninu og ég hafi valið að búaekki þar, þá þýðir það ekki að að ég afsali mér einhverjum mannréttindum eins og svo margir höfuðborgarbúar virðast halda að sé afskaplega eðlilegt. Það að velja að búa út á landi á ekki að þurfa að kosta einhverjar fórnir varðandi réttindi mín sem persónu. Það að Morgunblaðið sem selur blöðin útá land alveg eins og það selur blöðin á höfuðborgarsvæðinu þýðir að það á að gefa blöðin útá land alveg eins og á höfðuborgarsvæðinu. Ég er hrædd um að ef dæminu væri snúið við og þú þyrftir að fórna ýmislegu fyrir að búa á höfðuðborgarsvæðinu heyrðist annað hljóð úr stokki. Og það finnst mér nú
Berghildur Fanney Hauksdóttir (IP-tala skráð) 4.12.2008 kl. 13:05
Ja hérna Jón Agnar nú bætist enn í grátkórinn í kommentakerfinu þínu yfir því að þeir sem búa á suðvesturhorninu fái nú eitthvað en ekki þeir sem búa út á landi. Ég er hjartanlega sammála þér að þetta er fínt framtak hjá Moggamönnum. og ég hreinlega skil ekki svona öfund eins og birtist í kommentinu frá Berghildi Fanney.Manneskjan hlýtur bara að vera verulega sjúk að detta það í hug að það séu skert mannréttindi að hún skuli ekki fá Morgunblaðið frítt einu sinni í viku fram að jólum. Ef hún er svona viss í sinni sök að hér sé verið að brjóta á henni, þá ætti hún umsvifalaust að fara með þetta fyrir dómstóla og alla leið til mannréttindadómstólsins í Stassburg ef þörf krefur. Þá hlýtur hún að fá þessi 3 eða 4 eintök af fimmtudagsblöðunum send um hæl.
Sigurður Eðvaldsson, 4.12.2008 kl. 13:20
Berghildur - það er reyndar ýmsu fórnað með því að búa út á landsbyggðinni og það þýðir ekkert fyrir þig að nöldra í mér yfir því; flóra matsölustaða, úrval bíóhúsa, söfn og önnur menningarstarfsemi og þannig gæti ég lengi haldið áfram. Það eru áhöld um hvað eru "mannréttindi" en þú afsalar þér aðgengi að ýmsu með því að búa annars staðar en á Reykjavíkursvæðinu. Það er bara einföld staðreynd. Vitaskuld fæst margt annað í staðinn úti á landi, það er jafnóumdeilt, en mörgu er engu að síður fórnað. Maður er manns gaman og við erum einfaldlega fleiri hér á Suð-vestur horninu. Gamanið er svo eftir því.
Ef Mogginn er svona mikill snepill, hvernig nennirðu þá yfirleitt að nöldra yfir því að fá ekki blaðið? "Það eru ekki alltaf jólin" segir máltækið, en kostulegt er að hitta fyrir fólk sem er þannig í lundina að "það eru aldrei jólin". Ekki einu sinni á jólunum...
Fólk sem lendir í fjárhagslegri kreppu á bágt til skemmri tíma en þeir sem hafa kreppuna á sinninu, þeim fyrst er vorkunn; kýrnar sem eru horaðar, sama hve grænn beithaginn er.
Sigurður - hvað annað getur maður sagt?
Jón Agnar Ólason, 4.12.2008 kl. 13:41
Og er það ekki svo að þessi "snepill" gerir okkur fært að tuða hér. En að mínu mati væri vissulega gott að geta fengið að afþakka "gjöfina", fyrir þá sem að það kjósa. Þó ekki væri nema bara út frá náttúrulegum sjónarmiðum.
Sigurður (IP-tala skráð) 4.12.2008 kl. 15:14
Mig grunar að það þurfi alltaf að gefa Grimmhildi afmælisgjöf þegar börn eða ættingjar hennar eiga afmæli annars verður hún brjáluð!
Þórður Helgi Þórðarson, 4.12.2008 kl. 19:38
Ég get alveg keypt minn Mogga sjálf, þarf engan þéttbýlisstyrk til þess. Verði ykkur bara að góðu
Anna Guðný , 4.12.2008 kl. 20:53
Doddi - það mætti ætla það!
Anna Guðný - þetta er rétti andinn! Eina leiðin!
Jón Agnar Ólason, 4.12.2008 kl. 21:47
En djöfull var þetta illa orðað hjá mér.. dem ég verð að hætta að tjá mig í heroín vímu...
Þórður Helgi Þórðarson, 5.12.2008 kl. 08:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.