Davíð, Jón Ásgeir og miðlarnir sem þeir stýra

Ég nenni ekki að leggja í umræðupúkkið um ráðningu Davíðs Oddssonar og Haraldar Johannessen í ritstjórastólana hjá Árvakri, en mér finnst eitt einkennilegt samt sem áður í þeirri umræðu. Það er þetta með "ég kaupi ekki lengur Moggann, les ekki mbl.is og ég blogga ekki lengur á Moggablogginu". Það var og.

Þá spyr ég í framhaldinu - á að lesa Fréttablaðið, vísi.is og vísisbloggið eftir sem áður?

Það er talað um það fyrirfram að nú verði Morgunblaðið ótrúverðugur öfga-hægripappír og ekkert verði að marka eitt né neitt sem þar mun standa. Eigum við ekki að láta það rætast í raun áður en brugðist er við því með hávaða og hrakyrðum?

Hallgrímur Helgason, sem löngum var í liði með Samfó, Jóni Ásgeiri og skrifaði reglulega í Fréttablaðið, sagði frá því í rækilegu helgarblaðsviðtali í DV í sumar að hann hefði fengið sannkallað sannleikssjokk á vordögum. Þá var hann í samkvæmi ásamt einhverjum ónefndum Baugsbarónum og heyrði á tal eins þeirra. Sá stærði sig af því að stjórna sko nokk hvað kæmi fram í Fréttablaðinu, allt eftir hentugleika síns málstaðar. "Fjandinn, hugsaði Hallgrímur. Davíð Oddsson hafði rétt fyrir sér. Þetta er bara Baugsmiðill." Nokkurn veginn orðrétt haft eftir.

Eru þá Baugsmiðlarnir ekki í sömu sporum og Mogginn á að heita núna? Nema hvað menn gefa sér að óreyndu hvað verði með Morgunblaðið, en Fréttablaðið hefur þegar gerst sekt um það sem Mogganum er borið á brýn? Ég skil þetta ekki alveg, gott fólk. En þið?

Ég kaupi Morgunblaðið í áskrift óhikað eftir sem áður eins og ég hef gert síðan við hjónin hófum búskap, les mbl.is af því það er allt að því ógerningur að fylgjast með án þess og les að sjálfsögðu moggabloggið sem fyrr.
mbl.is Vill að viðtölum verði eytt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Af hverju ertu að skeyta þessum ósköpum við þessa frétt ?

hilmar jónsson, 30.9.2009 kl. 02:30

2 Smámynd: Jón Agnar Ólason

Nú - mér varð hugsað til Jóns Ásgeirs í framhaldinu af fréttinni, og fjölmiðlaumfjöllun þar að lútandi. Hann hefur áður stýrt umfjöllun um sig í þeim tilfellum sem hann réði viðkomandi miðli og virðist litlu hafa gleymt í þeim efnum ef marka má fréttina. Of flókið orsakasamhengi fyrir þig?

"þessum ósköpum" - ?! Ég ræð af því að þau sjónarmið sem koma hér fram henti þér ekki, Hilmar? Er málefnaleg orðræða þar sem allar skoðanir fá að birtast þér ekki að skapi?

Jón Agnar Ólason, 30.9.2009 kl. 07:58

3 Smámynd: Ómar Ingi

Fólk er fífl.

En þú hefðir nú mátt gefa GUS GUS fullt hús á 24/7

Ómar Ingi, 30.9.2009 kl. 19:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband